Gylfi: Eitthvað sérstakt við það

Víkingar leiða einvígið 2-1.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Flautað verður til leiks 17:30 á íslenskum tíma á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj Hansen skoraði bæði mörk Víkings í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með sigri í einvíginu tryggja Víkingar sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar leiða einvígið 2-1.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur vann fyrri leikinn 2-1 í Fossvogi og leiðir því einvígið með einu marki. Leikurinn á morgun verður í Szombathely í Ungverjalandi vegna átakana í Ísrael.
Fótbolti.net ræddi við Gylfa Þór Sigurðsson á liðshóteli Víkings í Ungverjalandi fyrr í dag.
„Ég býst ekki við því að þeir breyti því hvernig þeir muni spila mikið. Þeir pressa mikið og eru góðir í því. Þeir eru góðir í fótbolta og vilja spila. Það er fullt af góðum leikmönnum þarna.
Ég held að þetta fari eftir því hvernig okkur tekst að pressa þá, verjast þeim og spila út úr pressunni þeirra. Það er lykilatriði á morgun,“ segir Gylfi aðspurður um hvernig hann heldur að Ísraelarnir komi til leiks.
Skemmtilegra að spila á grasi
Víkingar hafa tekið eina æfingu úti í Ungverjalandi og mun liðið æfa á keppnisvellinum í kvöld. Leikurinn fer fram á grasvelli og segir Gylfi það skemmtilegra að spila á grasi heldur en gervigrasi.
„Ef völlurinn er góður þá er það auðvitað skemmtilegra. Ég held að allir séu vanir því að spila á bæði gervigrasi og venjulegu grasi. Það er eitthvað við það að spila á grasi sem er aðeins skemmtilegra.“
Stórt fyrir framtíð félagsins
Gylfi var spurður út í muninn á leikjum í Bestu deildinni og í Evrópukeppni.
„Það er auðvitað hversu mikið er undir fyrir félagið fjárhagslega. Spennan í kringum leikina, mætingin er reyndar mjög góð í flestum leikjum í deildinni - oftast fullur völlur. En þegar við spilum í Evrópu er alltaf pakkað. Það er örlítið meiri stemning, kvöldleikir á móti alvöru liðum. Það er eitthvað sérstakt við það,“ segir Gylfi og heldur áfram.
„Fyrir klúbbinn er það hversu stórt þetta er fyrir allt félagið og reksturinn næstu ár hjá klúbbnum. Það er eitthvað við það að ná góðum árangri og hjálpa félaginu í því að byggja til framtíðar,“ segir Gylfi að lokum.

Flautað verður til leiks 17:30 á íslenskum tíma á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj Hansen skoraði bæði mörk Víkings í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með sigri í einvíginu tryggja Víkingar sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
