Fotbolti.net
28.10.26 - 10:58
Kári Snorrason

Orri orðaður við fimm lið í ensku úrvalsdeildinni

Hefur skorað í síðustu þremur leikjum Sociedad.

Hefur skorað í síðustu þremur leikjum Sociedad.

Canon

Mynd: EPA

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson hefur verið að gera góða hluti með Real Sociedad í Baskalandi að undanförnu.

Hann hefur skorað í síðustu þremur leikjum liðsins og hefur vakið áhuga nokkurra liða úr ensku úrvalsdeildinni.

TEAMtalk greinir frá því að fimm lið í ensku úrvalsdeildinni hafi sýnt Orra áhuga. Á meðal liða er Everton sem er hvað sterklegast orðað við Orra.

Önnur lið nefnd í frétt TEAMtalk eru Tottenham, Newcastle, Sunderland og Brentford.

Everton er í framherjaleit og vill félagið styrkja í þá stöðu í janúar þar sem liðið er einungis með eina hreinræktaða níu í Thierno Barry.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.