28.10.26 - 08:31
Elvar Geir Magnússon
Gagnrýnir viðbrögð Arteta eftir rauða spjald táningsins

Dowman fékk rautt spjald gegn Fleetwood.

Mynd: EPA

Ein óvæntustu úrslit í sögu enska deildabikarsins urðu í gær þegar D-deildarliðið Fleetwood Town sló út Englandsmeistara Arsenal.
Hinn 16 ára Max Dowman fékk að líta beint rautt spjald á 85. mínútu þegar hann sparkaði í liggjandi leikmann Fleetwood í pirringskasti eftir groddaralega tæklingu og kláruðu Englandsmeistararnir leikinn einum manni færri.
Þegar Dowman gekk í átt að búningsherbergjunum fékk hann orð í eyra frá Mikel Arteta, stjóra Arsenal, sem var auðsjáanlega illur út í táninginn.
„Arteta lætur þennan unga strák heyra það. Hann er augljóslega ekki sáttur við þetta agaleysi. En við verðum að muna að hann er ungur strákur, hann er bara barn í aðstæðum þar sem pressan er gríðarleg," segir Jobi McAnuff, sérfræðingur Sky Sports.
„Ég skil ekki viðbrögð Mikel Arteta. Hann er pirraður. Þetta er ekki eiginlegt spark; hnéð á honum er í raun nú þegar í snertingu við hinn leikmanninn, þetta er meira eins og snögg hreyfing. Þetta er greinilega pirringur hjá Max Dowman eftir erfitt kvöld."
„Mér fannst rauða spjaldið strangt. Ég er ekki hrifinn af viðbrögðum Arteta því við verðum við að muna að hér er um 16 ára strák að ræða. Jú, hann er í Arsenal og er gríðarlegt efni. Hann á eftir að gera mistök á ferlinum.“

TENGT EFNI
Sjáðu mörkin: D-deildarliðið kastaði Arsenal úr keppni
Can anyone make out what Arteta said to Dowman after being sent off? https://t.co/iYeNhsDMlS
— Connor Humm (@TikiTakaConnor) October 27, 2026

Mynd: EPA