Fotbolti.net
28.10.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fyrirliðinn spilaði meiddur: Mbappé er fyrirmynd

Fyrirliðinn spilaði meiddur: Mbappé er fyrirmynd
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn fjölhæfi Federico Valverde spilaði í rúma klukkustund sem hægri bakvörður er Real Madrid hafði betur í El Clásico slagnum eftirvænta á Nývangi síðastliðið sunnudagskvöld.
63 ára Mourinho renndi sér á hnjánum
TENGT EFNI

63 ára Mourinho renndi sér á hnjánum

Valverde var tæpur fyrir leikinn og meiddist í fyrri hálfleik en spilaði í gegnum sársaukann til að hjálpa liðinu að sigra ríkjandi Spánarmeistara Barcelona, sem verma áfram toppsæti La Liga þrátt fyrir tapið.

„Ég verð að tala um Fede Valverde," sagði Mourinho eftir lokaflautið. „Hann hélt áfram að spila þrátt fyrir að hafa meiðst í fyrri hálfleik. Hann spilaði meira en 40 mínútur meiddur, hann neitaði að koma af vellinum. Hann spilaði í gegnum sársaukann og skildi allt eftir á vellinum."

Valverde var spurður út í meiðslin að leikslokum. „Ég fann fyrir miklum sársauka og ég vona að ég sé ekki meiddur. Þjálfarinn spurði hvort ég gæti spilað í gegnum sársaukann og auðvitað svaraði ég játandi," sagði fyrirliðinn, sem snéri sér svo að Kylian Mbappé besta leikmanni vallarins sem skoraði bæði mörk Madrídinga í sigrinum.

„Mbappé er fyrirmynd fyrir okkur alla. Hann er alvöru stórstjarna og það er frábært að hann sé kominn í 100 marka klúbbinn."

Arda Güler og Jude Bellingham voru einnig kátir eftir lokaflautið. „Það er ekki spurning, Real Madrid er besta fótboltalið í heimi," sagði Güler.

„Við unnum orrustuna en stríðið heldur áfram," sagði Bellingham.
Fyrirliðinn spilaði meiddur: Mbappé er fyrirmynd
Canon

Mynd: EPA

Fyrirliðinn spilaði meiddur: Mbappé er fyrirmynd
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.