28.07.26 - 14:01
Ívar Björgvinsson
Tómleg stúka Víkingum í hag - „Allt önnur skepna úti“
Auglýsing

Daníel Hafsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj Hansen skoraði bæði mörk Víkings í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður veit ekki við hverju á að búast.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikurinn hefst 17:30.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur mætir ísraelska liðinu Hapoel B'eer Sheva í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar á morgun.
Víkingur vann fyrri leikinn 2-1 í Fossvogi en leikurinn sem hefst síðdegis á morgun verður í Szombathely í Ungverjalandi vegna aðstæðna í Ísrael.
Fótbolti.net ræddi við Daníel Hafsteinsson á liðshóteli Víkings í Ungverjalandi fyrr í dag. „Þetta er ágætis hótel, allavega nóg af afþreyingu. Tíminn líður hratt, það er gaman,“ segir Daníel aðspurður um hvernig sé að vera kominn aftur til Ungverjalands.

Farnir að kannast við sig í Ungverjalandi
Aðeins tvær vikur eru síðan Víkingar voru síðast í Ungverjalandi er þeir heimsóttu ungverska meistaraliðið ETO Györ. Víkingar fóru inn í leikinn með eins marks forskot úr fyrri viðureigninni, rétt eins og þeir gera á morgun, og tryggðu sér sæti áfram með jafntefli í Györ.
„Þetta er svipað leiknum gegn Györ – við erum að fara að spila gegn góðu liði. Það er meiri spenningur í hópnum frekar en stress. Við þurfum að reyna að hafa gaman að þessu líka.“
Veit ekki við hverju á að búast
Fyrri leikur liðanna í Víkinni var virkilega fjörugur og orkustigið var hátt í báðum liðum. Daníel segist ekki vita hvort það sama verði upp á teningnum á morgun.
„Maður veit það ekki alveg. Í gegnum árin hefur maður lært það að þetta er allt önnur skepna þegar maður er kominn út. Maður veit ekki við hverju á að búast. Allt annar leikur. Það er meiri hiti hérna, spilum á grasvelli, aðeins öðruvísi aðstæður. Ég vona að þetta verði jafn skemmtilegur leikur og fyrri leikurinn.“
Tómur 'heimavöllur' Ísraelana
Leikið verður á Haladás leikvanginum í Szombathely í Ungverjalandi vegna átakanna í Ísrael. Völlurinn tekur um níu þúsund manns en búist er við að nokkur hundruð stuðningsmenn Hapoel leggi leið sína á leikinn. Á heimaleikjum liðsins í Ísrael eru áhorfendur yfirleitt um 16 þúsund.
„Það hjálpar klárlega. Það er okkur í hag, það segir sig sjálft. Þeir fá ekki sömu hvatningu og ef þeir væru á heimavelli, við þurfum að reyna að nýta það,“ segir Daníel að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan