28.08.26 - 11:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Albert til Bologna?

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er í ítölskum fjölmiðlum orðaður við Bologna. Albert er leikmaður Fiorentina en var ónotaður varamaður í tapinu stóra gegn Roma í 1. umferð deildarinnar.
Ítalski blaðamaðurinn Nicolo Schira segir að Bologna vilji fá Albert á láni með möguleika á kaupum í framtíðinni.
Staðarmiðlar í Flórens segja að Albert sé metinn á um 20 milljónir evra.
Bologna er sagt vilja fá Albert fyrir enska kantmanninn Jonathan Rowe sem er sterklega orðaður við Atalanta. Albert var sjálfur orðaður við Atalanta fyrr í sumar.

Moise Kean er á förum frá Fiorentina til Como og það gæti breytt stöðu Alberts hjá Fiorentina. Slúðrað er um að hann sé ekki viss um að Bologna sé rétta skrefið fyrir sig og að hann vilji sannfæra Fabio Grosso um að hann geti verið lykilmaður í liði Fiorentina.
Fiorentina á heimaleik gegn Frosinone á morgun.
Fiorentina á heimaleik gegn Frosinone á morgun.
#Bologna have shown interest in #Fiorentina’s forward Albert #Gudmundsson for a loan with the option to buy. #transfers
— Nicolò Schira (@NicoSchira) August 27, 2026

Mynd: EPA