Fotbolti.net
28.08.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

UEFA höfðar mál gegn Infantino

Gianni Infantino forseti FIFA og Aleksander Ceferin forseti UEFA.

Gianni Infantino forseti FIFA og Aleksander Ceferin forseti UEFA.

Canon

Mynd: EPA

UEFA hefur ákveðið að höfða mál gegn Gianni Infantino forseta FIFA.

Fótboltasamband Evrópu hefur sótt um aðgang að sönnunargögnum og skjölum til notkunar í málsmeðferð gegn Infantino og ásakar hann um að hafa brotið af sér í starfi.
Lýsa yfir vantrausti gegn Infantino
TENGT EFNI

Lýsa yfir vantrausti gegn Infantino

Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.

UEFA heldur því fram að verðmat á hlutunum sem selja átti hafi ekki verið staðfest af óháðum aðilum og að það hefði verið boðið of ódýrt. Infantino hafi ætlað sér að selja undir markaðverði í eigin þágu.

UEFA skoðar það að höfða mál gegn fleirum innan FIFA
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.