Úr Bestu í hollensku úrvalsdeildina - „Vel undirbúinn fyrir þetta verkefni"

Kominn í hollensku úrvalsdeildina.

Mynd: Excelsior

Var í lykilhlutverki hjá Blikum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Farinn erlendis og í fyrsta sinn sem leikmaður í meistaraflokki.

Mynd: Excelsior

Persónulega er ég sáttur við mína frammistöðu og gaman að hafa átt stóran þátt í vegferðinni í bikarnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég held að fólk geri sér ekki alltaf fulla grein fyrir því hversu mikil áhrif það hefur haft á liðið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég kem því inn í þetta tímabil með mikið sjálfstraust og tel mig vera vel undirbúinn fyrir þetta verkefni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vildi alltaf taka næsta skref og fara á stærra svið og það var markmiðið mitt fyrir þetta tímabil hjá Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er miklu meiri ákefð í öllu sem við gerum og þetta er virkilega góður staður til að þróast og verða betri fótboltamaður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn í hollensku úrvalsdeildina.

Mynd: Excelsior
Hann kemur til Excelsior frá uppeldisfélaginu Breiðabliki. Fótbolti.net sagði frá því að hollenskt félag fylgdist með Ágústi spila í Bestu deildinni fyrir tæpum þremur vikum og nú er hann mættur til Rotterdam.
Ágúst er 21 árs vinstri kantmaður sem var lykilmaður í liði Breiðabliks á tímabilinu. Hann vakti athygli með öflugri frammistöðu í Sambandsdeildinni í fyrra og hefur verið orðaður við atvinnumennsku erlendis síðustu misseri. Hann lék í vetur sinn fyrsta A-landsleik og er hluti af U21 landsliðinu

Ágúst Orri keyptur í hollensku úrvalsdeildina (Staðfest)
Hvernig líður þér með að vera orðinn leikmaður félags í hollensku úrvalsdeildinni?
„Það er mjög góð tilfinning. Ég finn strax á æfingum að þetta er allt annað level. Það er miklu meiri ákefð í öllu sem við gerum og þetta er virkilega góður staður til að þróast og verða betri fótboltamaður."
Markmiðið var að fara út
Ágúst var sterklega orðaður við Rakow í Póllandi í kringum áramótin. Á endanum varð ekkert úr félagaskiptunum. Eftir að hafa verið nálægt því að fara í vetur, var eitthvað stress hvort þetta myndi ganga upp? Finnur þú fyrir létti?
„Ég myndi ekki segja að það hafi verið einhver léttir þegar þetta kláraðist. Ég vildi alltaf taka næsta skref og fara á stærra svið og það var markmiðið mitt fyrir þetta tímabil hjá Breiðabliki. Ég var því alltaf með það í huga að þetta gæti gerst og þegar tækifærið kom var ég tilbúinn að taka það."
Mjög stórt skref
Hvað veistu um Excelsior?
„Ég veit að þetta er mikill fjölskylduklúbbur og ótrúlega metnaðarfullt félag. Það hefur verið mjög auðvelt að kynnast fólkinu hérna og ég er mjög ánægður með fyrstu dagana."
Hversu stórt skref er þetta upp á við frá Bestu deildinni?
„Þetta er mjög stórt skref að fara úr íslensku deildinni yfir í hollensku deildina. Það eru miklu fleiri áhorfendur, betri leikmenn og mun meiri gæði."
Ertu búinn að koma þér fyrir?
„Ég er enn að koma mér almennilega fyrir, en mér líst mjög vel á Rotterdam og er spenntur fyrir því að kynnast borginni betur," sem býr á hóteli fyrstu tvær vikurnar hið minnsta.
Með mikið sjálfstraust og vel undirbúinn
Ágúst var keyptur til Malmö 2022, sneri aftur í Breiðablik tæpu ári seinna og var í ágúst 2023 svo keyptur til Genoa en sneri aftur í Kópavoginn rúmu ári seinna.
Þetta er í þriðja sinn sem þú ferð frá Breiðabliki erlendis. Líður þér eins og þú sért eins vel undirbúinn og hægt er?
„Já, þetta er í fyrsta skipti sem ég fer út í atvinnumennsku í meistaraflokki og mér hefur aldrei liðið jafn vel, bæði líkamlega og andlega. Ég kem því inn í þetta tímabil með mikið sjálfstraust og tel mig vera vel undirbúinn fyrir þetta verkefni."
Stefnir á að ná að hjálpa liðinu
Hvert er markmiðið hjá þér á tímabilinu?
„Persónulega vil ég fyrst og fremst hjálpa liðinu með mínum styrkleikum. Ég tel að mínir eiginleikar og hæfileikar geti nýst liðinu vel."
Ræddi við sinn fyrrum liðsfélaga um Excelsior
Voru einhverjir sem þú ræddir við áður en þú tókst skrefið til Hollands?
„Já, ég ræddi við marga áður en ég tók ákvörðunina og allir voru sammála um að þetta væri frábært tækifæri fyrir mig."
Ágúst ræddi sérstaklega við sinn fyrrum liðsfélaga frá tímanum í Genoa.
„Ég heyrði í Seydou Fini félaga mínum úr Genoa sem spilaði eitt tímabil á láni hjá Excelsior og hann talaði mjög vel um klúbbinn."
Svekkjandi að missa af bikarúrslitunum
Ágúst skoraði sex mörk og lagði upp fjögur í Bestu deildinni á tímabilinu. Hann skoraði þá fjögur mörk í jafnmörgum leikjum í bikarnum.
Er erfitt að fara frá Blikum?
„Já, það er auðvitað erfitt að fara frá Breiðabliki. Félagið hefur gert ótrúlega mikið fyrir mig og ég verð alltaf mjög þakklátur fyrir það. Það er því sérstaklega svekkjandi að missa af bikarúrslitaleiknum með uppeldisfélaginu mínu."
Held að fólk geri sér ekki fulla grein fyrir því
Hvernig líður þér með tímabilið hjá Blikum og þér sjálfum?
„Tímabilið hjá liðinu hefur verið mjög kaflaskipt og við höfum verið óheppnir með meiðsli nánast allt tímabilið. Ég held að fólk geri sér ekki alltaf fulla grein fyrir því hversu mikil áhrif það hefur haft á liðið."
„Persónulega er ég sáttur við mína frammistöðu og gaman að hafa átt stóran þátt í vegferðinni í bikarnum," segir Ágúst Orri að lokum.
Næsti leikur Excelsior er nágrannaslagur gegn Sparta Rotterdam á morgun og er spilað á heimavelli Excelsior.

Var í lykilhlutverki hjá Blikum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Farinn erlendis og í fyrsta sinn sem leikmaður í meistaraflokki.

Mynd: Excelsior

Persónulega er ég sáttur við mína frammistöðu og gaman að hafa átt stóran þátt í vegferðinni í bikarnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég held að fólk geri sér ekki alltaf fulla grein fyrir því hversu mikil áhrif það hefur haft á liðið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég kem því inn í þetta tímabil með mikið sjálfstraust og tel mig vera vel undirbúinn fyrir þetta verkefni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég vildi alltaf taka næsta skref og fara á stærra svið og það var markmiðið mitt fyrir þetta tímabil hjá Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er miklu meiri ákefð í öllu sem við gerum og þetta er virkilega góður staður til að þróast og verða betri fótboltamaður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

