Fotbolti.net
28.08.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Samkomulag um Ward-Prowse í höfn

Samkomulag um Ward-Prowse í höfn
Canon

Mynd: EPA

Enski miðjumaðurinn James Ward-Prowse er á leið aftur heim til Southampton eftir þrjú ár hjá West Ham, samkvæmt Sky Sports.
Gæti snúið aftur í uppeldisfélagið
TENGT EFNI

Gæti snúið aftur í uppeldisfélagið

Southampton náði samkomulagi við West Ham í gær eftir viðræður félaganna undanfarna daga. Félagið greiðir um eina milljón punda fyrir hinn 31 árs gamla Ward-Prowse sem snýr þar með aftur heim.

Ward-Prowse var ekki í leikmannahópi West Ham í 4-1 tapinu gegn Southampton í enska deildabikarnum á dögunum en hafði verið í hópnum í öllum leikjum liðsins fram að því.

Hann er uppalinn hjá Southampton og lék með aðalliði félagsins í tólf ár áður en hann gekk til liðs við West Ham árið 2023.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.