28.08.26 - 23:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Cherki átti að fara af velli í hálfleik: Ég spilaði hræðilega

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Erling Haaland og Rayan Cherki skoruðu sitthvora tvennuna í 4-1 sigri Man City á Crystal Palace í kvöld.
Þeir voru í viðtali hjá Sky Sports eftir leikinn. Cherki var ekki nógu sáttur með eigin frammistöðu.

„Frammistaðan mín var í lagi. Við fundum ekkert pláss í fyrri hálfleik, ég spilaði hræðilega. Ég var ekki hrifinn af því þegar Enzo vildi taka mig út af (í hálfleik)" sagði Cherki.
„Ég þarf að sýna að ég vilji spila, ég vil skora og leggja upp á Erling. Ég vil senda boltann meira næst."
„Segðu það sem þú virkilega meinar, þú skoraðir tvö frábær mörk," sagði Haaland.
„Það er ekkert. ég vil leggja upp mörk á hann," sagði Cherki.
Í öðru viðtali sagði hann svo að hann hefði beðið stjórann, Enzo Maresca, um fimm mínútur og þá þyrfti hann ekki að gera breytingu. Hann nýtti mínúturnar frábærlega, var ekki tekinn af velli og var valinn maður leiksins.