Fotbolti.net
28.08.26 - 21:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalski boltinn

Ítalía: Lærisveinar Amorim byrja vel

Ítalía: Lærisveinar Amorim byrja vel
Canon

Mynd: EPA

Milan 2 - 0 Venezia
1-0 Goncalo Ramos ('69 )
1-1 Redouane Halhal ('89 , sjálfsmark)
AC Milan hóf tímabilið vel með sigri á Torino um síðustu helgi í fyrsta leik liðsins undir stjórn Ruben Amorim.

Liðið fékk nýliða Venezia í heimsókn í kvöld. Staðan var markalaus í hálfleik en Goncalo Ramos braut ísinn þegar hann skoraði eftir sendingu frá Alexis Saelemaekers sem kom inn á sem varamaður tíu mínútum áður.

Redouane Halhal, varnarmaður Venezia, varð síðan fyrir því óláni að skora klaufalegt sjálfsmark undir lokin og gulltryggði Milan sigurinn. Filip Stankovic, markvörður Venezia, varði skot frá Ardon Jashari og boltinn fór í Halhal og í netið.

Milan er á toppnum með sex stig en Venezia er án stiga á botninum. Þórir Jóhann Helgason var ónotaður varamaður hjá Venezia.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Milan2+36
2Roma1+43
3Inter1+33
4Lecce1+23
5Napoli1+23
6Atalanta1+13
7Juventus1+13
8Lazio1+13
9Cagliari1+13
10Udinese101
11Como101
12Sassuolo1-10
13Torino1-10
14Bologna1-10
15Frosinone1-10
16Parma1-10
17Genoa1-20
18Monza1-30
19Venezia2-40
20Fiorentina1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.