Fotbolti.net
28.08.26 - 22:31
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Heimir fékk gult spjald: Búinn að halda mér á mottunni í allt sumar

Auglýsing
Heimir fékk gult spjald: Búinn að halda mér á mottunni í allt sumar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Bara ánægður með þrjú stig, það var það sem við tökum út úr þessu" sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, eftir 3-1 sigur á Gróttu á heimavelli. 

Lestu um leikinn: Fylkir 3 - 1 Grótta

„Við vorum ekki góðir í þessum leik, sérstaklega í fyrstu tuttugu. Á tuttugu og fimm mínútunum komum við okkur aðeins betur inn í þetta, en mér fannst við samt alltaf vera undir. Seinni hálfleikur var betri, en vandræðin í seinni hálfleik voru svo miklar opnanir fyrir skyndisóknir. Léleg sending eða röng ákvörðun, en það er jákvætt að hjá okkur að spila ekki vel og vinna."

Voru þið heppnir í dag að Grótta refsaði ykkur ekki?

„Já já, algjörlega. Gróttuliðið eins og við höfum séð í sumar, mjög gott lið. Þeir hafa verið að fá fín úrslit, sérstaklega á útivöllum, þeir hafa verið góðir þar."

Gummi Tyrfings var í leikbanni í dag, hafði fjarvera hans áhrif á Fylki?

„Gummi er búin að skora mikið fyrir okkur í sumar og eftir að hafa byrjað rólega, var meiddur í byrjun, þá hefur hann orðið betri og betri. Hann er mikilvægur í þessu liði, við söknuðum hans í kvöld."

Heimir fékk gult spjald í dag, af hverju?

„Ég æsti mig aðeins. Mér fannst hann svona, kannski línan ekki alveg vera nógu góð. Ég held að þetta sé fyrsta gula spjaldið sem ég fæ í sumar, ég er búin að halda mér á mottunni í allt sumar."

Það eru sögusagnir um að Stjarnan sé að líta til þín sem næsta þjálfara?

„Stjarnan er með þjálfara eins og staðan er í dag, það er ekki mitt að tjá mig um það."

Ánægður í Árbænum?

„Við erum búnir að vinna þrettán leiki í sumar og það hefur ekkert lið unnið fleiri leiki, það sem okkur hefur kannski vantað er stöðugleiki. Við höfum verið að reyna að vinna í því, allavega tveir sigrar núna í röð og við verðum að byggja ofan á það."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Var í leikbanni.

Var í leikbanni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.