
Sara Björg Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Juventus sem tryggði sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Liðið lagði Köge frá Danmörku á heimavelli 2-0 en leikar enduðu með 1-1 jafntefli í Danmörku í síðustu viku. Sara kom Juventus yfir í leiknum.
Rosengard verður einnig í riðlakeppninni eftir sigur á Brann 3-1 á heimavelli eftir 1-1 jafntefli á útivelli. Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Rosengard í dag á meðan Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn fyrir Brann.
PSG vann 2-0 sigur á Hacken, samanlagt 4-1 en Berglind Björg Þorvaldsdóttir lék ekkert í þessu einvígi fyrir PSG. Selma Sól Magnúsdóttir og stöllur í Rosenborg eru úr leik eftir 2-1 tap gegn Real Madrid í kvöld, samanlagt 5-1.
Athugasemdir