Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 28. september 2022 15:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Starf Moyes hangir á bláþræði
David Moyes.
David Moyes.
Mynd: Getty Images
Það er farin að myndast pressa á David Moyes, stjóra West Ham, og hangir starf hans á bláþræði.

Þetta kemur fram hjá Telegraph.

Moyes hefur heilt yfir unnið gott starf hjá West Ham síðustu árin, mjög gott starf. Liðið náði Evrópusæti á síðasta tímabili en byrjunin á þessari leiktíð hefur verið afar slök.

Stjórn West Ham er búið að leggja upp næstu fimm leiki sem algjöra lykilleik og þarf Moyes að fara að sækja góð úrslit.

West Ham er í 18. sæti með fjögur stig eftir sjö leiki en næsti leikur liðsins er gegn Wolves á laugardagskvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner