Fotbolti.net
28.09.26 - 13:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rannsaka meint kynþáttaníð í garð leikmanns Heimis

Idah fagnar marki með írska landsliðinu.

Idah fagnar marki með írska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Írska fótboltasambandið, FAI, hefur hafið rannsókn á því hvort Adam Idah hafi orðið fyrir kynþáttaníði frá stuðningsmönnum Ísraels í 3-0 sigri Írlands í Þjóðadeildinni á sunnudag.

Jayson Molumby, miðjumaður Íra, ræddi við dómara meðan á leiknum stóð og bað þá að fylgjast með óviðeigandi söngvum frá stuðningsmönnum Ísraels.
„Ef ég segði það sem mér finnst þá myndi ég fá leikbann"
TENGT EFNI

„Ef ég segði það sem mér finnst þá myndi ég fá leikbann"

Dómarateymið heyrði hins vegar ekki sjálft kynþáttaníð og því fór ekkert formlegt ferli af stað hjá UEFA.

FAI hefur nú ákveðið að rannsaka málið sjálft og safnar saman upptökum frá leiknum, þar á meðal hljóði úr hljóðnemum við völlinn. Sérstök nefnd mun fara yfir efnið og ef talið verður að næg gögn séu til staðar mun sambandið leggja fram kvörtun til UEFA og óska eftir formlegri rannsókn.

Idah vissi sjálfur ekki af mögulegu kynþáttaníði á meðan leiknum stóð, en hann hefur fengið stuðning frá liðsfélögum og starfsfólki Írlands í kjölfarið.

Írland vann leikinn, sem var spilaður í Ungverjalandi, 3-0 og skoraði Idah annað mark liðsins. Um 300 stuðningsmenn Ísraels voru á vellinum en engir miðar voru seldir til írskra stuðningsmanna vegna mótmæla í kringum leikinn.

Heimir Hallgrímsson er landsliðsþjálfari Írlands.
Írland vann 3-0 sigur á Ísrael í gær.

Írland vann 3-0 sigur á Ísrael í gær.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.