28.09.26 - 12:40
Elvar Geir Magnússon
Davíð Helgi: Mér var strax hent í djúpu laugina
Auglýsing

Davíð Helgi Aronsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Davíð Helgi Aronsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Á morgun klukkan 15 leika strákarnir í U21 landsliðinu við jafnaldra sína frá Sviss í undankeppni EM. Ísland þarf á sigri að halda í baráttunni um 2. sæti riðilsins.
„Við þurfum að vinna þennan leik til að eiga séns. Það er það eina sem er í boði," segir Davíð Helgi Aronsson, varnarmaður íslenska U21 landsliðsins.
Íslenska liðið átti flottan leik gegn Frakklandi á dögunum og gerði 1-1 jafntefli. Davíð spjallaði við Fótbolta.net fyrir æfingu í Laugardalnum í dag.

„Ég held að við munum eiga mjög góðan séns ef við við höldum áfram því sem við gerðum í síðasta leik. Ef við mætum með sama orkustig og sömu liðsheild."
„Við vitum að svissneska liðið er mjög gott. Leikurinn við þá síðast var mjög jafn og við þurfum að mæta með sömu orku og í síðasta leik. Við megum ekkert slaka á."
„Það var mjög gaman að spila síðasta leik, það er alltaf gaman að spila fyrir fólkið sitt og sérstaklega þegar það er góð mæting."
Ekki búinn að smakka Lyngby pulsuna
Davíð helgi lék með Keflavík í sumar á láni frá Víkingi áður en hann gekk í raðir danska liðsins Lyngby. Hvernig hafa þessir mánuðir í Lyngby verið?
„Þeir hafa verið mjög skemmtilegir og ég hef lært mjög mikið. Mér var strax hent í djúpu laugina og verð að halda áfram að gera mitt besta og bæta mig, ég finn að ég er að gera það á hverri einustu æfingu. Það gengur mjög vel."
Hlutirnir hafa gerst hratt hjá honum á þessu ári.
„Ég vissi ekki að þetta gæti gerst svona hratt í fótbolta," segir Davíð sem finnur að Íslendingar eru í miklum metum hjá Lyngby. Hann viðurkennir hinsvegar að hafa ekki enn prófað Lyngby pulsuna frægu, Lyngby pölsen, sem er algjört hnossgæti og er seld á vellinum.