28.09.26 - 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo ónotaður varamaður í fyrsta sinn í 18 ár

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgal vann 2-1 sigur á Noregi í Þjóðadeildinni í gær. Það vakti athygli að Cristiano Ronaldo sat allan tímann á varamannabekknum.
Þetta er í fyrsta sinn í 18 ár sem Ronaldo situr á bekknum allan tímann í keppnisleik með portúgalska landsliðinu. Það gerðist síðast á EM 2008 þegar Portúgal tapaði 2-0 gegn Sviss í riðlakeppninni.
Þá vakti einnig athygli að hann fór strax inn í klefa eftir leikinn á meðan portúgalski hópurinn fagnaði með 500 portúgölskum stuðningsmönnum sem ferðuðust til Noregs.
„Hann getur bara svarað því," sagði Jorge Jesus, landsliðsþjálfari portúgals.
„Staðreyndin er sú að þótt hann hafi ekki spilað í dag þýðir það ekki að ég treysti ekki á hann. Ég sagði honum að ég myndi setja hann inn, en ég taldi það ekki réttlæta að gera breytinguna á framherja með eiginleika hans."