28.09.26 - 10:00
Innkastið
Upprisa Ladda sem var skúrkur í fyrra - „Komið mér hrikalega á óvart“

Þórhallur Ísak Guðmundsson, Laddi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Laddi verður 27 ára síðar á árinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur leikur í Bestu deildinni á næsta ári.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Þórhallur Ísak Guðmundsson, Laddi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Markvörðurinn Þórhallur Ísak Guðmundsson var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni eftir að hafa hjálpað Þrótti að komast upp í Bestu deildina.
Laddi, eins og hann er kallaður, átti alvöru upprisutímabil eftir að hafa verið skúrkur fyrir ári síðan þegar hann gerði afdrifarík mistök og átti mjög slakan leik gegn HK í undanúrslitum umspilsins. HK vann þann leik 4-3 og leit hann illa út í öllum fjórum mörkum Kópavogsliðsins.
„Þegar ég kom í Þrótt hafði ég heyrt af þessum mistökum sem hann gerði í úrslitakeppninni í fyrra og að Þróttur vildi nýjan markmann," segir Sigurður Egill Lárusson, samherji hans hjá Þrótti.
„Ég vissi sjálfur ekkert um hann en svo æfði ég með honum um veturinn og fannst hann þvílíkt góður. Hann hefði alveg eins getað byrjað mótið eins og Aron. Svo meiðist Aron og hann kemur í fjórða eða fimmta leik inn, hann hefur varla stigið feilspor síðan og verið þvílíkt góður. Hann er líka bara góður í fótbolta, góður í löppunum og hefur komið mér hrikalega á óvart."

TENGT EFNI
Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2026
Laddi var talinn veikur hlekkur hjá Þrótti sem sótti Aron Dag Birnuson til að taka við sem aðalmarkvörður fyrir þetta tímabil en þegar Laddi fékk tækifærið aftur vegna hans meiðsla þá leit hann ekki til baka.
Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, ræddi við Ladda á Laugardalsvelli eftir að Þróttur vann Fylki 1-0 í úrslitaleik umspilsins og komst upp í Bestu deildina.
„Ég byrjaði tímabilið í öðru hlutverki og maður þurfti bara að taka því og halda áfram. Maður skilur það eftir hvernig seinasta tímabil endaði. Einn leikur í fyrra og já ég veit það ekki. Þetta var mjög skrítið að vera settur á bekkinn eftir undirbúningstímabilið. Aron Dagur er frábær markmaður en maður nýtti sér svo bara tækifærið þegar það kom, halda áfram að keyra á þetta," sagði Þórhallur sem gekk til liðs við Þrótt haustið 2023.