Fotbolti.net
28.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Frá í tvo mánuði eftir El Clásico: Tímabilið er langt

Frá í tvo mánuði eftir El Clásico: Tímabilið er langt
Canon

Mynd: EPA

Hinn bráðefnilegi Xavi Espart byrjaði í hægri bakverði hjá Barcelona í 1-2 tapi gegn Real Madrid í El Clásico slagnum síðasta sunnudagskvöld.
Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico
TENGT EFNI

Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico

Espart meiddist eftir harkalegt samstuð í fyrri hálfleik og var skipt af velli á 30. mínútu. Nú er komið í ljós að hann verður frá keppni í um tvo mánuði vegna meiðsla á hægri ökkla.

Espart er 19 ára gamall og hefur verið frábær á upphafi tímabils. Hann er fæddur og uppalinn í Barcelona og leikur fyrir U21 landslið Spánverja.

Spánarmeistarar Barca töpuðu slagnum mikilvæga á heimavelli en eru þrátt fyrir það með tveggja stiga forystu á toppi La Liga, með 27 stig eftir 10 umferðir.

„Við vildum gleðja stuðningsmennina okkar á heimavelli en okkur tókst það ekki. Við erum sorgmæddir en þurfum að halda áfram, ferðalagið er mjög langt. Deildartímabilið er bara nýbyrjað," sagði miðjumaðurinn Pedri í viðtali eftir lokaflautið og tóku liðsfélagar hans undir. Joao Cancelo var svekktur enda taldi hann Barca vera sterkara liðið í leiknum.

„Við vorum betra liðið en Real Madrid refsaði okkur. Þeir eru með rosaleg gæði og nýttu færin sín vel."

Miðvörðurinn Pau Cubarsí talaði um alltof mikið leikjaálag og tók undir orð Pedri.

„Ég vil ekki nota þetta sem afsökun en það er rosalegt leikjaálag á okkur þessa stundina. Við erum búnir að spila fullt af leikjum á upphafi tímabils og það er eðlilegt að sjá þreytumerki. Við megum samt ekki nota það sem afsökun, við verðum að gera betur. Það er bara október, deildartímabilið er mjög langt," sagði Cubarsí.
Frá í tvo mánuði eftir El Clásico: Tímabilið er langt
Canon

Mynd: EPA

Frá í tvo mánuði eftir El Clásico: Tímabilið er langt
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla10017
7Alaves10+312
8Athletic9+312
9Celta10+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna10-1011
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.