Fotbolti.net
28.10.26 - 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sveinn Elías: Svo stoltur af þjálfarateyminu mínu að þora þessu

Siggi Höskulds og Eiður Ben.

Siggi Höskulds og Eiður Ben.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt gögnum á ordio.is er hlutfall spilaðra mínútna hjá uppöldum leikmönnum í Bestu deildinni 77% hjá Þór. Það er það hæsta í deildinni en Breiðablik er í öðru sæti með 63%.

Liðið var að meðaltali með 8,3 uppalda leikmenn í byrjunarliði sínu og næst yngsta meðalaldurinn á byrjunarliði í deildinni. Einungis FH tefldi fram yngra byrjunarliði að meðaltali.

Alls komu 23 uppaldir Þórsarar við sögu með liðinu á tímabilinu. Þór hélt sæti sínu í deildinni með því að vinna síðustu þrjá leiki sína í deildinni.

Fótbolti.net ræddi við formann fótboltadeildar Þórs, Svein Elías Jónsson, um uppöldu leikmennina.
„Það er náttúrulega ótrúlegt (að 23 uppaldir leikmenn hafi spilað á tímabilinu), en það er alveg dásamlegt. Ég er svo stoltur af þjálfarateyminu mínu að þora þessu. Verandi í þessa stöðu, sérstaklega eftir landsleikjahléið. Þá var alveg ljóst að við mættum ekkert misstíga okkur það sem eftir var af tímabilinu. Þá var fjórum 2. flokks strákum stillt upp í byrjunarliðinu. Siggi var grjótharður og sannfærði mig um að þetta væri liðið sem myndi vinna leikinn og bakkaði það upp."

„En það er ljóst að ungu strákarnir okkar spiluðu meira en við stefndum að í sumar. Við ætluðum að vera með fleiri reynslumeiri leikmenn til taks. Atli Sigurjóns var mikið frá, hann er uppalinn Þórsari, og hann átti að vera í fleiri mínútum með sína reynslu. Þetta pínu spilaðist svona óvart en á sama tíma þarf að hafa þor til að setja þessa stráka inn á völlinn,"
segir Sveinn Elías.
Fjórir 2. flokks strákar byrjuðu síðustu fjóra leikina.

Fjórir 2. flokks strákar byrjuðu síðustu fjóra leikina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sveinn Elías: Svo stoltur af þjálfarateyminu mínu að þora þessu
Canon

Mynd: Ordio/skjáskot

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.