Fotbolti.net
28.11.24 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Heillaðist af Bradley - „Ótrúleg frammistaða“

Bradley gekk vel að glíma við Mbappe.

Bradley gekk vel að glíma við Mbappe.

Canon

Mynd: EPA

Stuðningsmenn Liverpool eru í skýjunum með frammistöðu bakvarðarins Conor Bradley í 2-0 sigrinum gegn Liverpool í gær. Þessi 21 árs leikmaður fékk mikla ást úr stúkunni á Anfield.

Danny Murphy, fyrrum miðjumaður Liverpool, var heillaður af frammistöðu leikmannsins unga.
Einkunnir Liverpool og Real Madrid: Arftaki Trent og besti varamarkvörður heims með stórleik
TENGT EFNI

Einkunnir Liverpool og Real Madrid: Arftaki Trent og besti varamarkvörður heims með stórleik

„Þegar maður horfir á ungan leikmann spila líklega sinn stærsta leik á ferlinum, mæta einum besta leikmanni Evrópu (Kylian Mbappe) og eiga svona frammistöðu. Það er ótrúlegt. Hann á gríðarlega bjarta framtíð," segir Murphy.

„Ég veit að það er mikið rætt um samningamál Trent Alexander-Arnold núna en þvílíkur leikmaður sem kemur inn og fyllir hans skarð."

Liverpool er með átta stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni og hefur unnið alla fimm leiki sína í Meistaradeildinni.

„Það sem Liverpool hefur fram yfir Manchester City og Arsenal að mínu mati er þessi mikla breidd," segir Chris Sutton, fyrrum sóknarmaður í ensku úrvalsdeildinni. „Gott dæmi er að Caoimhin Kelleher er varamaður fyrir Alisson og Conor Bradley fyrir Trent Alexander-Arnold."
Chris Sutton.

Chris Sutton.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.