Fotbolti.net
28.11.26 - 13:42
Brynjar Ingi Erluson

„Stjórnin sagði mér að hún sæi mig ekki fyrir sér í liðinu“

„Stjórnin sagði mér að hún sæi mig ekki fyrir sér í liðinu“
Canon

Mynd: EPA

Króatíski miðvörðurinn Luka Vuskovic hefur farið á kostum í liði Brighton það sem af er tímabili en það er hálf ótrúlegt að hugsa til þess að Tottenham hafi ekki haft not fyrir hann áður en hann var seldur til Brighton.
Brighton keypti Vuskovic frá Tottenham í sumar fyrir 46 milljónir punda, en upphæðin gæti hækkað í 50 milljónir ef ákveðin skilyrði verða uppfyllt.

Félagaskiptin komu mörgum á óvart, enda er Vuskovic talinn einn efnilegasti varnarmaður heims og hafði átt frábært tímabil með Hamburger í Þýskalandi.

Búist hafði verið við að hann myndi snúa aftur til Tottenham um sumarið og berjast um sæti í liðinu, en annað kom á daginn. Honum var einfaldlega tilkynnt að hann gæti ekki reiknað með miklum spilatíma.

„Stjórnin sagði mér að þeir sæju mig ekki fyrir sér í liðinu og því var í raun ekkert fyrir mig að berjast um,“ sagði Vuskovic við Sky Sports.

Hann hafði áður rætt félagaskiptin við Athletic og greint frá því að enginn stjóri Tottenham hefði haft samband við hann á meðan hann lék með Hamburger.

Tottenham vildi síðan lána hann aftur um sumarið, en Vuskovic hafði engan áhuga á því. Hann vildi koma sér fyrir á einum stað, kynnast fólki og eignast vini í stað þess að vera sífellt á ferðinni milli félaga.

Hann fékk sínu framgengt með félagaskiptunum til Brighton og hefur heldur betur látið til sín taka síðan.

Vuskovic hefur spilað alla ellefu deildarleiki Brighton á tímabilinu og komið að tveimur mörkum. Liðið hefur einnig verið á mikilli siglingu og situr í öðru sæti deildarinnar með 22 stig.
„Stjórnin sagði mér að hún sæi mig ekki fyrir sér í liðinu“
Canon

Mynd: Brighton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.