29.01.21 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Halla í FH (Staðfest)

Halla Helgadóttir

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Halla Helgadóttir hefur skrifað undir samning við FH og mun leika með liðinu næsta sumar.
Halla kemur til FH Selfossi þar sem hún hefur spilað síðustu þrjú keppnistímabil.
Hún er fædd árið 2001 og hóf meistaraflokksferil sinn með Hetti á
Egilsstöðum.
„Halla er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst nokkrar stöður á vellinum og er þrátt fyrir ungan aldur komin með töluverða reynslu. Í meistaraflokki hefur hún spilað 52 leiki og skorað í þeim 9 mörk," segir á Facebook síðu FH.
„Halla er efnilegur og öflugur leikmaður sem við bindum miklar vonir við fyrir komandi tímabil. Velkomin í FH. #ViðerumFH"