Fotbolti.net
29.01.21 - 22:18
Brynjar Ingi Erluson

Jesse Lingard til West Ham (Staðfest)

Jesse Lingard er mættur til West Ham

Jesse Lingard er mættur til West Ham

Canon

Mynd: West Ham

Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United hefur gengið frá lánssamningi við enska vængmanninn Jesse Lingard en hann kemur til félagsins frá Manchester United.
Lingard, sem er 28 ára gamall. hefur ekkert fengið að spila með Man Utd á þessari leiktíð og fékk því leyfi til að finna sér annað félag í þessum glugga.

Hann var orðaður við nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni en David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham, sannfærði Lingard um koma til West Ham. Moyes og Lingard endurnýja því kynni sín en Moyes þjálfaði hann hjá United tímabilið 2013-2014.

Lingard gerir lánssamning út tímabilið en West Ham fær ekki forkaupsrétt á leikmanninum.

„Ég er spenntur. Þetta er nýr kafli í mínu lífi og það er ekkert öruggt í þessu en ég ákvað að koma hingað og leggja hart að mér að hjálpa liðinu og koma með mína reynslu inn í hópinn. Ég vil bara njóta þess að spila fótbolta og fá tækifæri til að spila og koma mér í gang," sagði Lingard við West Ham TV eftir undirskrift.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.