29.01.21 - 15:08
Magnús Már Einarsson
Jökull aftur til Exeter (Staðfest) - Verður út tímabilið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Andrésson, markvörður Reading, hefur gert lánssamning við Exeter út tímabilið.
Hinn 19 ára gamli Jökull varði mark Exeter í sex leikjum fyrir áramót þegar meiðsli voru hjá liðinu en hann var þá á neyðarláni.
Frammistaða Jökuls var góð og Exeter hefur nú samið við Reading að fá leikmanninn á láni fram á vor.

Í þessari viku var Jökull á neyðarláni hjá Morecambe í D-deildinni en hann átti meðal annars frábæran leik í sigri á félögum sínum í Exeter.
Frammistaða Jökuls þar skilaði honum í lið umferðarinnar í ensku D-deildinni en hann er nú farinn frá Morecambe og klárar tímabilið með Exeter.
Exeter er í dag í 9. sæti í D-deildinni, tveimur stigum frá sæti í umspili.

✍️ THE ICEMAN COMETH 🇮🇸
— Exeter City FC (@OfficialECFC) January 29, 2021
Exeter City is delighted to welcome back @JokullAndresson on loan from @ReadingFC for the rest of the season!#ECFC #OneGrecianGoal pic.twitter.com/ZOVLiShzQo