Fotbolti.net
29.01.21 - 18:25
Brynjar Ingi Erluson

Kristófer Reyes í Fjölni (Staðfest) - Zachan til Ungverjalands

Kristófer Reyes spilar með FJölni í Lengjudeildinni á komandi tímabili

Kristófer Reyes spilar með FJölni í Lengjudeildinni á komandi tímabili

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnismenn hafa styrkt sig fyrir komandi átök en Kristófer Reyes er kominn til félagsins frá Víkingi Ó. Peter Zachan er þá farinn til Ungverjalands.
Kristófer er fæddur árið 1997 en hann hóf sín fyrstu skref með Ólafsvíkingum áður en hann gekk til liðs við Fram árið 2015.

Hann lék 38 leiki fyrir Fram áður en hann hélt aftur til Víkings árið 2019.

Nú er hann mættur í Fjölni og mun leika með þeim á komandi tímabili.

Þá er ungverski varnarmaðurinn Peter Zachan farinn aftur til Ungverjalands en hann spilaði fimmtán leiki í Pepsi Max-deildinni á síðasta tímabili.

Zachan gekk til liðs við Debreceni EAC en liðið leikur í næst efstu deild í Ungverjalandi og er í neðsta sæti deildarinnar eftir nítján leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.