29.01.21 - 19:38
Brynjar Ingi Erluson
Mbaye Diagne til WBA á láni frá Galatasaray (Staðfest)

Mbaye Diagne er mættur í ensku úrvalsdeildina

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið WBA hefur fengið til sín senegalska framherjann Mbaye Diagne á láni frá tyrkneska félaginu Galatasaray.
Diagne er 29 ára gamall og er með 11 mörk í 19 leikjum fyrir Galatasaray á þessari leiktíð.
Hann er genginn til liðs við WBA á láni út þetta tímabil en WBA er með forkaupsrétt á framherjanum.
Diagne var á mála hjá Juventus frá 2013 til 2015 en tókst þó ekki að spila fyrir aðalliðið.
Hann hefur komið víða við á ferlinum og spilað með félögum á borð við Kasimpasa, Tianjin TEDA og Club Brugge en það verður áhugavert að sjá hvort Sam Allardyce nær að kreista nokkur mörk úr honum í fallbaráttunni.