29.01.21 - 19:44
Brynjar Ingi Erluson
Newberry í toppliðið í Norður-Írlandi (Staðfest)

Michael Newberry spilar undir stjórn David Healy

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Norður-írski varnarmaðurinn Michael Newberry gerði í dag átján mánaða samning við Linfield í heimalandinu en hann kemur til félagsins frá Víkingi Ó.
Newberry sem er 23 ára gamall gekk til liðs við Víking Ó. frá Newcastle United árið 2018 og spilaði þrjú tímabil með liðinu.
Hann lék í heildina 65 fyrir Ólafsvíkinga en yfirgaf liðið eftir síðustu leiktíð.
Newberry er nú mættur til Linfeld í Norður-Írlandi en liðið er í efsta sæti deildarinnar sem stendur.
David Healy, fyrrum framherji Leeds og norður-írska landsliðsins, er þjálfari liðsins en hann skoraði 36 mörk í 95 landsleikjum fyrir Norður-Írland á ferlinum.