Fotbolti.net
29.01.21 - 18:43
Brynjar Ingi Erluson

Tómas Ingi orðinn aðstoðarþjálfari Fylkis (Staðfest)

Tómas Ingi er mættur aftur til Fylkis

Tómas Ingi er mættur aftur til Fylkis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tómas Ingi Tómasson er nýr aðstoðarþjálfari Fylkis í Pepsi Max-deildinni en hann verður einnig yfir afreksþjálfun hjá félaginu.
Ólafur Ingi Skúlason hætti sem aðstoðarþjálfari Fylkis á dögunum og tók við U19 ára landsliði karla og U15 ára landsliði kvenna.

Tómas Ingi tekur við sem aðstoðarþjálfari en hann mun aðstoða Atla Svein Þórarinsson og Ólaf Stígsson sem eru aðalþjálfarar liðsins.

Tómas hefur mikla reynslu af þjálfun hér á landi og þekkir vel til hjá Fylki en hann var yfirþjálfari hjá félaginu árið 2015 og þjálfaði einnig yngri flokka félagsins.

Hann var þá aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðsins í tíu ár og fór með liðið á Evrópumótið árið 2011.

Tómas hefur einnig verið að starfa sem sérfræðingur í kringum Pepsi Max-deildina á Stöð 2 Sport.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.