Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. janúar 2023 16:30
Aksentije Milisic
Enski bikarinn: Stoke lenti í kröppum dansi með fjórðu deildarlið
Stoke City komst áfram.
Stoke City komst áfram.
Mynd: Getty Images

Stoke City 3 - 1 Stevenage
1-0 Jacob Brown ('3 )
1-1 Jamie Reid ('71 )
2-1 Josh Laurent ('74 )
3-1 Lewis Baker ('80 , víti)


Championship liðið Stoke City fékk Stevenage í heimsókn í 32-liða úrslitum enska bikarsins en gestirnir spila í fjórðu efstu deild.

Stoke komst yfir strax á þriðju mínútu með marki frá Jacob Brown og þá héldu flestir að heimamenn myndu rúlla yfir leikinn.

Svo var aldeilis ekki og gaf Stevenage liðinu hörku leik og náðu gestirnir að jafna þegar tæpar tuttugu mínútur voru til leiksloka.

Þá hins vegar kveikti Stoke liðið aftur í sér og setti tvö mörk á sex mínútna kafla. Josh Lauren skoraði fyrra markið og Lewis Baker gulltryggði sigurinn með marki úr vítaspyrnu.

Stoke CIty er því komið áfram ásamt Brighton sem vann Liverpool með tveimur mörkum gegn einu.


Athugasemdir
banner
banner