Inter Milan hefur áhuga á að fá varnarmann Manchester United, Victor Lindelof.
Svíinn hefur ekki spilað mikið á þessari leiktíð en hann hefur hins vegar komið inn í liðið í síðustu tveimur leikjum gegn Nottingham Forest og Reading í bikarkeppnunum.
PSG fær Milan Skriniar frá Inter Milan en spurningin er sú hvort það verði næsta sumar eða á næstu dögum.
Skriniar getur farði frítt til PSG næsta sumar en franska liðið bauð rúmar níu milljónir evra í leikmanninn til að fá hann núna. Inter vill að PSG tvöfaldi upphæðina.
Náist samkomulag með PSG þá er Lindelof á listanum hjá Inter ásamt Tiago Djaló.
Manchester United vill hinsvegar ekki selja Lindelof í þessum glugga.
Athugasemdir