Fotbolti.net
29.04.21 - 14:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Franskur miðjumaður til Grindavíkur (Staðfest)

Franskur miðjumaður til Grindavíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Grindavík

Lengjudeildin
Grindavík hefur gengið frá samningi við franska miðjumanninn Walid Abdelali og mun hann leika með félaginu í sumar.

Walid er 28 ára varnarsinnaður miðjumaður og lék á síðustu leiktíð í 1. deildinni í Finnlandi.

„Hann lék þar við góðan orðstír. Walid verður vonandi kominn með leikheimild þegar Grindavík mætir Hvíta Riddaranum í Mjólkurbikarnum á Grindavíkurvelli á sunnudag," segir á heimasíðu Grindavíkur.
„„Við erum ánægðir með að fá Walid til okkar. Við höfum fylgst með honum frá því á síðasta ári og fengum hann á reynslu til okkar á dögunum."

„Walid hefur staðið sig vel og hann mun vonandi koma öflugur inn í liðið,“
segir Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur.

Grindavík mætir Hvíta riddaranum í bikarnum á sunnudag og hefur svo leik í Lengjudeildinni í næstu viku.

Heimild: Grindavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.