Valur 1 - 1 Fram
1-0 Patrick Pedersen ('52 )
1-1 Viktor Bjarki Daðason ('90 )
Lestu um leikinn
Valur og Fram gerðu dramatískt jafntefli á Hlíðarenda í kvöld.
Már Ægisson var hættulegasti maðurinn á vellinum í upphafi leiks. Hann fékk tvö góð færi en Frederik Schram sá við honum.
Valsmenn unnu sig fljótt inn í leikinn og Gylfi Þór Sigurðsson lék á varnarmenn Fram og komst einn gegn Ólafi Íshólm og kom boltanum framhjá honum en Fred mætti og bjargaði á línu.
Kristinn Freyr Sigurðsson kom inn í byrjunarliðið fyrir Bjarna Mark Antonsson en Kristinn þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla.
Valur byrjaði síðari hálfleikinn betur og tókst að brjóta ísinn þegar Patrick Pedersen skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Gylfa. Tryggvi Hrafn Haraldsson hefði getað tvöfaldað forystu Vals þegar hann fékk boltann í dauðafæri en hitti boltann illa.
Hinn 15 ára gamli Viktor Bjarki Daðason tryggði Fram stig þegar hann kom boltanum í netið af stuttu færi eftir að Þorri Stefán Þorbjörnsson skallaði boltann fyrir fætur hans.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 6 | 5 | 0 | 1 | 14 - 6 | +8 | 15 |
2. Breiðablik | 6 | 4 | 0 | 2 | 15 - 9 | +6 | 12 |
3. FH | 6 | 4 | 0 | 2 | 10 - 9 | +1 | 12 |
4. Valur | 6 | 3 | 2 | 1 | 9 - 5 | +4 | 11 |
5. Fram | 6 | 3 | 2 | 1 | 7 - 4 | +3 | 11 |
6. Stjarnan | 6 | 3 | 1 | 2 | 8 - 7 | +1 | 10 |
7. ÍA | 6 | 3 | 0 | 3 | 14 - 9 | +5 | 9 |
8. KR | 6 | 2 | 1 | 3 | 11 - 11 | 0 | 7 |
9. HK | 6 | 2 | 1 | 3 | 6 - 10 | -4 | 7 |
10. Vestri | 6 | 2 | 0 | 4 | 4 - 12 | -8 | 6 |
11. KA | 6 | 0 | 2 | 4 | 7 - 13 | -6 | 2 |
12. Fylkir | 6 | 0 | 1 | 5 | 5 - 15 | -10 | 1 |