Agla María Albertsdóttir fyrirliði Breiðabliks var ánægð með að Blikarnir náðu að klára verkefnið gegn Fram þegar liðin mættust á Kópavogsvelli í kvöld, þar sem Blikar fóru með 2-0 sigur af hólmi.
„Bara frábært að hafa náð að koma inn mörkum. Þetta var svona, þrátt fyrir að við fáum fullt af færum þá hefði þetta auðveldlega getað endað í jafntefli. Þannig ég er bara virkilega ánægð með að ná að brjóta ísinn og klára þetta.“ sagði fyrirliðinn eftir leik
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Fram
Leikurinn reyndist þolinmæðisverkefni fyrir Blika sem þurftu að vinna sig í gegnum þétt lið Fram. Agla María lagði upp fyrsta mark leiksins með frábærri fyrirgjöf.
„Já það er eins og ég segi, ég er bara virkilega fegin að ná að boltanum inn. Góður skalli hjá Líf þarna í fyrsta markinu.“
„Við höldum bara áfram, það eru þessir sigrar sem telja alveg jafn mikið og þessir stóru leikir. Þetta hefði hæglega getað endað í jafntefli, þannig ég er bara virkilega sátt.“
Bryndís Arna Níelsdóttir fékk fleiri mínútur til að koma sér í gang og var ekki langt frá því að setja sitt fyrsta mark.
„Já hún var óheppin. Hún stóð sig líka vel markmaðurinn hjá Fram, hún má eiga það, mjög sterk í teignum og góður markmaður heilt yfir. Vel gert hjá henni að verja þetta hjá Bryndísi.“
Agla María segir hópinn bíða spenntan eftir Ollu (Ólöfu Sigríði Kristinsdóttur) sem kemur með aukna breidd í hópinn.
„Olla er náttúrulega bara virkilega öflugur leikmaður og líka mjög góður liðsfélagi. Styrkir hópinn innan sem utan vallar. Þannig við erum klárlega mjög spenntar að fá hana og það skiptir alveg máli fyrir okkur að vera með meiri breidd í hópnum. Það er alveg klárt mál.“
Félagskiptaglugginn lokar á miðnætti aðspurð hvort við gætum átt von á einhverju óvæntu frá Blikum svaraði Agla María,
„Ekkert sem ég veit allavega. Við erum bara sáttar eins og er. Hvort það sé eitthvað að gerast á bak við tjöldin veit ég ekki en ég held við séum bara góðar með hópinn eins og hann er núna.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan
























