Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 09:00
Elvar Geir Magnússon
Gluggadagur í íslenska boltanum - Lengjudeildarfélög fá lengri tíma
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félagaskiptaglugganum hér á Íslandi verður lokað á miðnætti í kvöld en hann mun svo opna aftur þann 16. júlí og verður þá opinn í fjórar vikur.

Fótbolti.net mun að sjálfsögðu fylgjast vel með öllum helstu skiptum dagsins.

Ef þú lumar á upplýsingum um einhver skipti sem verið er að vinna í þá fögnum við tölvupóstum á [email protected]

Glugginn í Lengjudeildum karla og kvenna verður þó opinn í viku lengur eða út 6. maí en það á aðeins við um innlend félagaskipti.

Sumarglugginn í Lengjudeildunum opnar þá á sama tíma og í Bestu en verður einungis opinn í tvær vikur, frá 16. júlí og út 29. júlí.

Neðri deildir karla og kvenna
Í 2. deild kvenna, 3. deild karla, 4. deild karla, 5. deild karla og Utandeild karla er glugginn opinn frá 4. febrúar og út 29. júlí.
Slapp
banner
banner