Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   mið 29. apríl 2026 18:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristall Máni með þrennu í fyrri hálfleik gegn toppliðinu
Mynd: KSÍ
Kristall Máni Ingason fór hamförum þegar Brann vann öruggan sigur á Tromsö í norsku deildinni í kvöld.

Staðan var 3-0 í hálfleik en Kristall gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu. Leiknum lauk með 5-0 sigri Brann.

Kristall Máni og Jón Dagur Þorsteinsson voru í byrjunarliðinu en Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru meiddir. Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.

Tímabilið hefur farið brösuglega af stað en liðið er í 7. sæti með sjö stig eftir sjö umferðir. Tromsö er á toppnum með 19 stig.


Slapp
banner
banner
banner