Jan Oblak, markvörður Atletico Madrid, er bjartsýnn á að liðið komist í úrslit Meistaradeildarinnar eftir jafntefli í fyrri leik liðsins gegn Arsenal á heimavelli í kvöld.
Viktor Gyökeres kom Arsenal yfir með marki úr vítaspyrnu en Julian Alvarez jafnaði metin einnig með marki úr vítaspyrnu. Þá dæmdi dómarinn vítaspyrnu þegar Eberechi Eze féll í teingum undir lok leiksins en dró dóminn til baka eftir að hafa skoðað atvikið í VAR.

„Þetta var hörkuspennandi leikur af báðum hliðum. Bæði lið voru að leita að sigri en ég tel að við höfum átt góðan leik en með stöðuna 1-1 er mikið undir í Lundúnum í næstu viku.“
„Það var mikill léttir þegar hann dró vítaspyrnudóminn til baka. Ég vona að ég hefði varið hana hvort eð er. Þetta var ákvörðun dómarans og við erum sammála henni."
„Ég var nálægt því að verja fyrsta vítið en það var svo mikill kraftur í ihenni. Hann hitti boltann fullkomlega. Það er fortíðin, við þurfum að einbeita okkur fyrst og fremst að leik helgarinnar og svo að Lundúnum. Við munum ekki hugsa um fyrri leikinn sem við töpuðum 4-0 á Emirates (í deildakeppninni). É hef trú á því að þetta verði allt öðruvísi leikur og við munum gera allt til að ná í góð úrslit og komast í úrslit."