Guðbjörn Smári Birgisson er lykilmaður Hvíta en hann var frábær á miðsvæðinu þegar liðið fór upp síðasta sumar.
Á föstudaginn fer 2. deild karla af stað. Við á Fótbolta.net fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.
Við byrjum á að fara yfir liðin fjögur sem er spáð frá sætum tólf til níu í þessari skemmtilegu deild.
Við byrjum á að fara yfir liðin fjögur sem er spáð frá sætum tólf til níu í þessari skemmtilegu deild.
12. sæti: Hvíti riddarinn (17 stig)
Sæti í fyrra: 1. sæti í 3. deild
Hvíti riddarinn er spáð 12. og neðsta sæti 2. deildarinnar eftir að hafa komið upp úr 3. deild síðasta sumar með eftirminnilegum hætti. Liðið kom flestum á óvart með því að vinna deildina, sérstaklega í ljósi þess að því var aðeins spáð sjöunda sæti fyrir tímabilið. Hvíti riddarinn raðaði inn mörkum, skoraði 72 mörk síðasta sumar. Nú tekur við allt annað verkefni þar sem gæðin í 2. deildinni eru meiri, og ljóst að áskorunin verður töluvert stærri. Hvíti riddarinn er með áhugaverðan leikmannahóp þar sem svo gott sem allir hafa komið upp í gegnum starf Aftureldingar og er öflugt teymi á bak við liðið sem hefur þegar sýnt að það kann að byggja upp sterka liðsheild. Spurningin er hvort liðið geti aftur farið fram úr væntingum og leikmenn geti tekið skref fram á við. Ef eitthvað er að marka síðasta sumar er ekki hægt að útiloka að Hvíti riddarinn afsanni spána á ný, en til þess þarf margt að ganga upp í sterkari og meira krefjandi deild.
Lykilmenn: Guðbjörn Smári Birgisson og Hilmar Þór Sólbergsson
Gaman að fylgjast með: Birkir Örn Baldvinsson
Þjálfarinn segir - Ásbjörn Jónsson
„Spáin kemur mér ekkert á óvart. Ekki frekar en okkur var spáð 7. sæti í 3. deildinni í fyrra. Ég var sannfærður þá að við værum betri en það og ég er jafn sannfærður um það núna að við erum betri en þessi spá. Það er hins vegar okkar verkefni að sýna það og sanna. En þegar horft er á liðin í deildinni þá er auðvelt að draga þá ályktun að við ættum að vera neðstir. Stór hluti af þeim liðum sem spila í þessari deild eru jafn stór og Afturelding, sem er okkar stóri bróðir í venslasambandi okkar. Þetta verður því verðugt verkefni."
11. sæti: Kári (23 stig)
Sæti í fyrra: 9. sæti í 2. deild
Kári er spáð 11. sæti í eftir sveiflukennt tímabil í fyrra. Væntingarnar voru talsverðar eftir sterkt undirbúningstímabil, en þegar upp var staðið átti liðið erfitt með að finna taktinn og var komið í fallbaráttu þegar leið á sumarið. Þeir náðu þó að rífa sig upp á lokakaflanum, unnu síðustu tvo leikina og tryggðu sér áframhaldandi veru í deildinni. Sem venslafélag ÍA er hópurinn að stórum hluta skipaður ungum og efnilegum Skagamönnum sem eru að taka sín fyrstu skref í meistaraflokki . Það er kannski ekkert óeðlilegt að lið sem byggir að mestu á ungum leikmönnum nái ekki alltaf þeim stöðugleika sem þarf yfir heilt tímabil, en það er jafnframt hluti af ferlinu. Inn á milli eru svo reyndari leikmenn sem eiga að leiða hópinn áfram. Breytingar hafa orðið á teyminu í kringum liðið fyrir þetta sumar og gætu þær haft sitt að segja. Ef Kári nær að draga úr sveiflum í frammistöðu og byggja ofan á sterkan endasprett síðasta tímabils er vel mögulegt að liðið haldi sér frá fallbaráttu og komi á óvart.
Lykilmenn: Albert Hafsteinsson og Marinó Hilmar Ásgeirsson
Gaman að fylgjast með: Máni Berg Ellertsson
Þjálfarinn segir - Úlfur Arnar Jökulsson
„Við tökum svona spám af auðmýkt en líka með ákveðinni ró. Það er ekkert óeðlilegt að ungu liði sé spáð neðarlega, sérstaklega þegar við erum með mjög ungan hóp þar sem langflestir leikmenn eru á aldrinum 18–20 ára og margir leikmenn eru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokksbolta."
„Það sem fólk sér kannski ekki alltaf er hversu mikill metnaður og gæði eru í þessum hópi. Við erum stoltir af því að vera venslafélag ÍA og það gefur okkur tækifæri til að þróa unga leikmenn í krefjandi umhverfi, með dýrmætri aðstoð öflugra eldri leikmanna. Markmið okkar er ekki bara að safna stigum heldur líka að byggja upp leikmenn og liðsheild sem getur vaxið hratt yfir sumarið."
„Við vitum að það verður krefjandi verkefni fram undan, en við trúum á vinnuna sem hefur verið lögð inn, karakterinn í hópnum og hungrið hjá þessum strákum. Ung lið geta komið á óvart þegar þau fá trú á sjálfum sér og taktinn í hlutina. Við ætlum að mæta af fullum krafti í hvert einasta verkefni og láta verkin tala á vellinum."
10. sæti: KFG (35 stig)
Sæti í fyrra: 10. sæti í 2. deild
KFG er spáð 10. sæti í eftir tímabil í fyrra þar sem liðið hélt sér á floti en var aldrei langt frá hættusvæðinu. Þrátt fyrir að hafa verið nokkuð stöðugur þátttakandi í deildinni undanfarin ár þurfti liðið að hafa fyrir hlutunum og ljóst að lítið má út af bregða ef það á að forðast fallbaráttu á ný. Sem venslafélag Stjörnunnar byggir KFG á leikmannahópi þar sem margir hafa komið í gegnum yngri flokka starfið í Garðabænum. Þar er blanda af efnilegum yngri leikmönnum og eldri sem hafa safnað reynslu á þessu stigi, sem getur gefið liðinu ákveðinn stöðugleika. Breytingar hafa orðið utan vallar fyrir komandi tímabil. Fyrrum landsliðs- og atvinnumaðurinn Veigar Páll Gunnarsson er hættur sem þjálfari og við keflinu taka Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson. Nýtt þjálfarateymi gæti fært liðinu ferska nálgun og verður fróðlegt að sjá hvort liðinu takist að forðast falldrauginn.
Lykilmenn: Arnar Ingi Valgeirsson og Djordje Biberdzic
Gaman að fylgjast með: Björn Darri Ásmundsson
Þjálfarinn segir - Brynjar Kristmundsson
Við í KFG erum mjög spenntir fyrir komandi tímabili. Undanfarin ár hefur KFG liðið verið stórskemmtilegt lið og ætlum við klárlega að halda því áfram. Það hafa orðað miklar breytingar á hópnum og hafa margir ungir strákar fengið tækifæri á að spila sína fyrstu meistaraflokksleiki og hafa staðið sig vel. Undanfarnar vikur höfum við verið að fá inn meiri reynslu í hópinn sem mun hjálpa þeim drengjum ennþá meira í að bæta sinn leik."
„Það er frábært fyrir alla í Garðabæ að hafa KFG liðið í 2.deild og 10. sætið myndi halda okkur þar en ég myndi ekki þiggja þetta sæti fyrir mót. Ég hef mikla trú á hópnum og hlökkum við mikið til að byrja."
9. sæti: Magni (47 stig)
Sæti í fyrra: 2. sæti í 3. deild
Mögnuðum Magnamönnum er spáð 9. sæti eftir að hafa tryggt sér sæti upp úr 3. deild með öðru sæti þar á síðustu leiktíð. Það hefur verið ákveðin lægð á Grenivík undanfarin ár þar sem liðið hefur tekið nokkur ár núna í 3. deild en með endurkomunni í 2. deild er tækifæri til að snúa þeirri þróun við og byggja upp nýjan kafla. Það er ákveðin bjartsýni í kringum liðið núna, enda hefur Magni áður sýnt að það getur verið erfiður mótherji á sínum heimavelli þegar vel gengur. Minningar um tímann þegar liðið lék í næst efstu deild eru enn til staðar og gefa tilefni til að horfa aðeins hærra en einfaldlega að halda sér uppi. Stemningin á Grenivík gæti spilað stórt hlutverk í sumar. „Grenidorm“ hefur oft verið skemmtilegur vettvangur og ef liðið nær að kveikja í sínu fólki getur það skapað erfiðar aðstæður fyrir gestalið. Spurningin er hvort Magni nái að festa sig í sessi á nýju stigi eða hvort aðlögunin að 2. deildinni reynist snúin, en það ætti að vera nóg af lífi og fjöri fyrir norðan sama hvernig fer.
Lykilmenn: Andri Fannar Stefánsson og Bjarki Þór Viðarsson
Gaman að fylgjast með: Haukur Leo Þórðarson
Þjálfarinn segir - Guðmundur Óli Steingrímsson
„Örugglega eðlileg spá. Þrátt fyrir að það sé kannski í raun grunn markmið Magna Grenivík að halda sér í deildinni, þá væru það töluverð vonbrigði að vera ekki allavega í topp 6 með þetta lið sem við erum með. Ég nenni samt eiginlega ekki að stefna á eitthvað minna en topp tvo en við sjáum til. Við rennum aðeins blint í sjóinn með önnur lið. Við erum ekki bara með frábært byrjunarlið heldur frábæran hóp og það verður mitt erfiðasta verkefni í sumar að velja 18 leikmenn fyrir hvern leik. Ef allir þessir 18+ leikmenn halda haus í sumar, þá gerast góðir hlutir."




