Það er gríðarlega mikil spenna á Akureyri fyrir komandi helgi en þá fer fram grannaslagur milli Þórs og KA á VÍS vellinum, heimavelli Þórs.
Miðasalan hófst í gær en það hefur verið staðfest að það er uppselt á leikinn. Leikurinn fer fram á laugardaginn 2. maí klukkan 16.
Eins og fyrr segir er mikil eftirvænting en liðin mættust síðast í efstu deild árið 2002 þar sem KA hafði betur í báðum leikjunum.
Þór er nýliði í Bestu deildinni í ár en liðið hefur byrjað tímabilið vel og situr í 7. sæti með sex stig eftir fjórar umferðir: KA er hins vegar án sigurs og er í 10. sæti með eitt stig.



