Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 29. maí 2020 18:25
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Svekkjandi lokakafli fyrir Darmstadt
Mynd: Getty Images
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Darmstadt 1 - 1 Greuther Furth
1-0 Fabian Schnellhardt ('56)
1-0 Felix Platte, misnotað víti ('63)
1-1 Marvin Stefaniak ('87)

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn er Darmstadt mætti Greuther Furth í þýsku B-deildinni.

Liðin eru í baráttu um að komast upp í efstu deild og því var leikurinn í dag mikilvægur.

Heimamenn voru með yfirhöndina en staðan var markalaus allt þar til Fabian Schnellhardt skoraði á 56. mínútu.

Felix Platte fékk kjörið tækifæri til að tvöfalda forystu heimamanna en hann brenndi af vítapunktinum.

Gestirnir áttu ekki skot á rammann fyrr en á lokakafla leiksins og náði Marvin Stefaniak að lauma inn jöfnunarmarki á 87. mínútu.

Meira var ekki skorað og svekkjandi jafntefli niðurstaðan. Darmstadt er í fimmta sæti eftir jafnteflið, þremur stigum frá umspilssæti í efstu deild.

Guðlaugur Victor er lykilmaður í liði Darmstadt og varafyrirliði félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner