Fotbolti.net
29.05.24 - 18:30
Elvar Geir Magnússon

Dyggir þjónar yfirgefa Newcastle

Matt Ritchie hefur yfirgefið Newcastle.

Matt Ritchie hefur yfirgefið Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur tilkynnt að fimm leikmenn úr aðalliðshópnum hafi yfirgefið félagið. Þar á meðal eru vinstri bakvörðurinn Paul Dummett og miðjumaðurinn Matt Ritchie sem eiga samtals 428 leiki. Dummett var hjá Newcastle í 23 ár.

Markvörðurinn Loris Karius, miðjumaðurinn Jeff Hendrick og varnarmaðruinn Kell Watts hafa einnig yfirgefið Newcastle.
„Það er auðvelt að dæma leikmenn á leikjum og mörkum en framlag Paul og Matt hefur verið frábært í mörg ár. Þeir hafa haft mikil áhrif á þróun liðsins og félagsins," segir Eddie Howe, stjóri Newcastle.

Newcastle er að reyna að fá til sín varnarmanninn Tosin Adarabioyo sem mun væntanlega yfirgefa Fulham í sumar þegar samningur hans rennur út. Í slúðurpakkanum í morgun var talað um að Newcastle væri að þrýsta á Tosin að taka ákvörðun.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.