
Útsýnið á efri hæðum Scandic Lerkendal hótelsins er skemmtilegt. Hér getur undirritaður bara horft beint út á hinn sögufræga Lerkendal leikvang sem hýst hefur marga stóra fótboltaleiki í gegnum tíðina og á morgun spilar íslenska kvennalandsliðið hér við Noreg í Þjóðadeildinni.
En fyrsti leikurinn sem kemur upp í hugann þegar maður horfir hér úta, það er án efa leikur Rosenborg og Vals í forkeppni Meistaradeildarinnar þann 18. júlí 2018.
En fyrsti leikurinn sem kemur upp í hugann þegar maður horfir hér úta, það er án efa leikur Rosenborg og Vals í forkeppni Meistaradeildarinnar þann 18. júlí 2018.
Valur fór með 1-0 forystu í leikinn úr fyrri leiknum á Hlíðarenda, en það varð allt vitlaust í seinni leiknum á Lerkendal. Það er óhætt að segja það.
Íslandsmeistararnir héldu hreinu í fyrri hálfleik en ekki leið á löngu þar til Rosenborg fékk afar ódýra vítaspyrnu í síðari hálfleik. Boltinn fór þá í höndina á Hauki Páli Sigurðssyni innan vítateigs, en Haukur hélt handleggjunum alveg að líkamanum. Nicklas nokkur Bendtner skoraði af vítapunktinum.
Heimamenn juku sóknarþungan í kjölfarið og tvöfölduðu forystuna rúmum stundarfjórðungi síðar þegar Anders Trondsen skallaði fyrirgjöf frá Bendtner í netið.
Valsarar voru þó ekki á því að gefast upp og fengu víti á lokakaflanum, sem Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði úr. Það mark hefði dugað Val til að komast áfram þar sem útivallarmörk gildu þá. En gleðin var ekki langlíf fyrir Val því Rosenborg fékk hrikalega ódýrt víti í lokin sem Bendtner skoraði úr og tryggði norska stórliðinu áfram.
„Í stöðunni 2-1 dæmdi hann okkur út úr þessari keppni á síðustu mínútunni," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir leikinn en hann sýndi peningamerki upp í stúku og fékk fyrir það tveggja leikja bann í Evrópukeppni.
Stefan Apostolov, dómarinn frá Búlgaríu, var í kjölfarið á forsíðum norskra blaða, hann var maðurinn sem réði úrslitum. „Ég hef ekki áður séð leik þar sem dómarinn hefur eins afgerandi áhrif," sagði Thorstein Helstad, fyrrum leikmaður Rosenborg, en þetta var grátlegt fyrir Valsara.
Það er vonandi að kvennalandsliðið sæki hér betri úrslit á morgun en fréttamaður Fótbolta.net er á staðnum og tók meðfylgjandi myndir af vellinum í dag.
Athugasemdir