Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 29. júní 2020 15:00
Magnús Már Einarsson
Jökull færist nær aðalliði Reading
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Andrésson spilaði tuttugu mínútur með Reading í sigri á Oxford í æfingaleik á dögunum.

Hinn 18 ára gamli Jökull er í dag þriðji markvörður Reading og möguleiki er á að hann fái tækifæri í leikmannahópnum í Championship deildinni undir lok tímabils.

Jökull á fjóra leiki að baki með U19 ára landsliði Íslands en hann hefur verið á mála hjá Reading síðan 2014. Áður lék hann með yngri flokkum Aftureldingar.

Jökull hefur áður verið á láni hjá Hungerford Town í ensku utandeildinni en möguleiki er á að hann fari á lán í ensku C eða D-deildina á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner