Fotbolti.net
29.06.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hvað var versta liðið á HM?

Hannibal Mejbri og félagar fara í sögubækurnar sem eitt versta lið í sögu HM.

Hannibal Mejbri og félagar fara í sögubækurnar sem eitt versta lið í sögu HM.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Í gær hófust 32-liða úrslitin á HM þegar Kanada vann Suður-Afríku með dramatískum hætti, 1-0.

Áður en mótið hófst vorum við á Fótbolti.net með sérstaka kraftröðun á liðunum þar sem þeim var raðað niður frá því slakasta til hins besta.

En hvernig lítur þessi listi út í dag? Hvað hefur breyst? Skoðum fyrst liðin sem duttu út. Seinna í dag birtist listi yfir þau lið sem komust áfram í 32-liða úrslitin.
Liðin sem eru dottin út
48. Túnis (niður um 10 sæti)
Ráku þjálfarann eftir fyrsta leik og stimpluðu sig í kjölfarið sem eitt slakasta lið í sögu keppninnar. Gjörsamlega hræðilegir frá A til Ö.

47. Sádi-Arabía (niður um 7 sæti)
Náðu jafntefli gegn Úrúgvæ í fyrsta leik en voru síðan rassskelltir af Spánverjum og fundu engar leiðir fram hjá Grænhöfðaeyjum. Áfellisdómur hvað þeir voru ótrúlegir í síðasta leiknum þar sem þeir áttu möguleika á því að komast áfram.

46. Jórdanía (niður um 3 sæti)
Þjálfari Jórdaníu náði líklega eins miklu og hann gat út úr mjög slöku liði sínu.

45. Úsbekistan (niður um 6 sæti)
Voru í erfiðum riðli og áttu ekki möguleika. Cristiano Ronaldo skoraði tvö gegn þeim.

44. Írak (Á sama stað)
Voru í ótrúlega erfiðum riðli og áttu sín augnablik, en þau voru ekki mörg.

43. Curacao (upp um 4 sæti)
Fámennasta þjóð í sögu keppninnar fer heim með eitt stig eftir eftirminnilegt jafntefli gegn Ekvador.

42. Nýja-Sjáland (Á sama stað)
Byrjuðu skemmtilega með jafntefli gegn Íran og komust yfir gegn Egyptalandi, en svo fór allt úrskeiðis hjá þeim eftir það.

41. Haítí (upp um 7 sæti)
Voru taldir slakasta liðið fyrir mótið og komu skemmtilega á óvart þrátt fyrir að hafa tapað öllum sínum leikjum. Voru ef eitthvað er betri en Skotland í fyrsta leiknum og voru óheppnir að fá ekkert út úr leik sínum við Marokkó. Geta gengið stoltir frá borði.

40. Katar (niður um 3 sæti)
Komu með mjög lítið að borðinu og en fara heim með eitt stig eftir dramatískt jöfnunarmark gegn Sviss. Tvöfaldir Asíumeistarar en gera alltaf lítið á HM.

39. Panama (upp um 6 sæti)
Voru í mjög erfiðum riðli en gáfu öllum liðunum góðan leik, þar á meðal Englendingum. Voru óheppnir að fá ekki bara sigur gegn Gana í fyrsta leik.

38. Tékkland (niður um 11 sæti)
Voru hrikalega leiðinlegir og lélegir á þessu móti. Áttu ekkert meira skilið en eitt stig. Patrik Schick, stjörnustriker liðsins, fékk nóg og ákvað að hætta í landsliðinu eftir að liðið féll úr leik.

37. Skotland (niður um 11 sæti)
Voru heppnir að vinna fyrsta leik sinn gegn Haítí. Scott McTominay var með magakveisu fyrir mótið og sást ekki. Að minnsta kosti voru skosku stuðningsmennirnir skemmtilegir.

36. Úrúgvæ (niður um 14 sæti)
Marcelo Bielsa, þjálfari Úrúgvæ, mætti brjálaður í viðtal eftir síðasta leikinn og skiljanlega. Fóru ekki upp úr riðli sem innihélt Grænhöfðaeyjar og Sádi-Arabíu. Hrikalegt mót fyrir Úrúgvæ.

35. Suður-Kórea (niður um 5 sæti)
Voru fínir í fyrsta leik en töpuðu svo gegn Suður-Afríku í leik sem skipti öllu máli. Son Heung-min var ótrúlega dapur á þessu móti.

34. Tyrkland (niður um 17 sæti)
Miklar vonir bundnar við Arda Guler og Kenan Yildiz en þeir voru mikil vonbrigði. Voru úr leik fyrir síðasta leikinn í riðlakeppninni og það voru gríðarleg vonbrigði.

33. Íran (niður um 5 sæti)
Það var svo sannarlega grátlegt fyrir Írana hvernig þeir duttu úr keppni. Gerðu jafntefli í öllum sínum leikjum og horfa eflaust mest á leikinn á móti Nýja-Sjálandi þar. Þjálfari Írans sagði liðið það kúgaðasta á HM þar sem liðið æfði og dvaldi í Tijuana í Mexíkó, þrátt fyrir að spila leikina í Bandaríkjunum. Þátttaka Írans á mótinu var strembin vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum og spennu í samskiptum Írans og Bandaríkjanna.
Lærisveinar Fabio Cannavaro í Úsbekistan gerðu ekki miklar rósir á mótinu.

Lærisveinar Fabio Cannavaro í Úsbekistan gerðu ekki miklar rósir á mótinu.

Canon

Mynd: EPA

Haítí átti fína spretti.

Haítí átti fína spretti.

Canon

Mynd: EPA

Patrik Schick sagði skilið við tékkneska landsliðið eftir HM.

Patrik Schick sagði skilið við tékkneska landsliðið eftir HM.

Canon

Mynd: EPA

Skosku stuðningsmennirnir voru allavega skemmtilegir.

Skosku stuðningsmennirnir voru allavega skemmtilegir.

Canon

Mynd: EPA

Marcelo Bielsa mætti brjálaður í viðtal eftir síðasta leik Úrúgvæ.

Marcelo Bielsa mætti brjálaður í viðtal eftir síðasta leik Úrúgvæ.

Canon

Mynd: EPA

Arda Guler gat ekki neitt á þessu móti.

Arda Guler gat ekki neitt á þessu móti.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.