Hemmi Hreiðars: Mér leið alveg hræðilega
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Valur lagði Þór í Bestu deildinni í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Hermann Hreiðarsson, þjálfara Vals, eftir leikinn. Valur var með tveggja marka forystu í hálfleik en Þór kom til baka og jafnaði áður en Valur kláraði leikinn.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 4 Valur
„Þetta er gríðarlegur léttir. Við vorum með helvíti góð tök á leiknum og fengum fullt af færum, hefðum bara þurft þetta þriðja mark til að ganga frá leiknum," sagði Hemmi.
„Þetta var stórskrítið. Allt í einu er staðan orðin 2-2. Það kom orka í Þórsarana eftir það. Við gerðum hrikalega vel að snúa þessu aftur við. Maður verður að hrósa klefanum fyrir það. Þegar þú ert með svona rosaleg tök á leiknum, menn eru að spila vel og njóta sín, að fá þetta í andlitið, það var rosalegt. Það voru allir hálfvankaðir við það. Þetta endaði vel og við áttum þetta fyllilega skilið."
Jónatan Ingi Jónsson er að snúa aftur eftir meiðsli. Það hafði mikil áhrif á leikinn þegar hann var tekinn af velli.
„Hann er einn af bestu leikmönnunum í deildinni. Það er frábært að fá hann til baka. Auðvitað helst það í hendur, við fáum á okkur klaufalegt mark og það slær okkur út af laginu. Vissulega hefur það áhrif þegar Jónatan fer út af," sagði Hemmi.
Varstu stressaður í 2-2 að þið mynduð jafn vel tapa?
„Ekki jafn vel og tíu mínútum áður, mér leið alveg hræðilega. Þetta var ekki í takt við leikinn en svona er fótbolti, þetta getur farið í allar áttir. Ef þú ert ekki nógu duglegur að ganga frá leikjunum þá getur þetta gerst. Enn og aftur verð ég að hrósa leikmönnum að trúa og halda áfram þangað til í lokin og uppskárum verðskuldaðan sigur."
Varnarmaðurinn Markus Nakkim skoraði tvennu í leiknum.
„Hann var stórkostlegur. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá hann til baka. Hann hefur verið svakalega öflugur í þeim leikjum sem hann hefur spilað í sumar og átti þetta skilið. Hann kom af krafti inn í þennan leik og þetta var bónus fyrir hann sem hann vann fyrir," sagði Hemmi.
Hemmi segir að stefnan sé sett á Evrópusæti.
„Að sjálfsögðu. Það er fullt eftir af þessu móti. Við vitum að það eru tvö lið sem eru töluvert á undan. Við höldum áfram að gera það sem við erum að gera. Við erum með sterkt lið, sérstaklega eftir að Jónatan er kominn til baka. Það hefur rosaleg áhrif. Við förum með mikið sjálfstraust úr þessum leikjum í næstu leiki," sagði Hemmi.