
Diomande samþykkir fimm ára samning við PSG


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það er útlit fyrir að Yan Diomande sé á leið til PSG frá RB Leipzig en margir erlendir fjölmiðlar greina frá þessu.
Franski miðillinn RMC Sport greinir frá því að PSG sé búið að ná samkomulagi við þennan 19 ára gamla Fílabeinsstrending um fimm ára samning.
Franski miðillinn RMC Sport greinir frá því að PSG sé búið að ná samkomulagi við þennan 19 ára gamla Fílabeinsstrending um fimm ára samning.
The Athletic greindi frá því fyrr í kvöld að Diomande vilji fara til PSG frekar en Liverpool sem hefur sýnt honum áhuga. Liverpool er tilbúið að borga 86 milljónir punda fyrir hann en Leipzig vill mun hærri upphæð.
Sky Sports og fleiri miðlar greina frá því að PSG sé á leið í viðræður við Leipzig um kaupverð.
Man City hefur einnig fylgst með gangi mála.
Sky Sports og fleiri miðlar greina frá því að PSG sé á leið í viðræður við Leipzig um kaupverð.
Man City hefur einnig fylgst með gangi mála.


