Fotbolti.net
29.06.26 - 12:01
Kári Snorrason

Sjáðu umdeildan vítadóm í Sandgerði - „Versta ákvörðun dómara sem ég hef orðið vitni að“

Auglýsing
Frá atvikinu umdeilda.

Frá atvikinu umdeilda.

Canon

Mynd: Skjáskot

Það var vægast sagt áhugaverður vítaspyrnudómur í 3. deildinni í gær er Reynir Sandgerði tók á móti Ými.

Um miðbik síðari hálfleiks, í stöðunni 1–2 fyrir Ými, var dæmd vítaspyrna á Ými eftir að Arnar Máni Ingimundarson handlék boltann í eigin teig eftir sendingu markvarðarins Björns Mikaels Karelssonar.

Ýmismenn tóku illa í dómin og ítrekuðu fyrir Milan Djurovic, dómara leiksins, að markvörðurinn hafi gefið boltann, sem var á ferð, á varnarmanninn svo að hann gæti tekið markspyrnuna.

Ingólfur Sigurðsson skoraði úr vítaspyrnunni og jafnaði metin í 2-2 og þar við sat. Reynir er í 4. sæti með 17 stig en Ýmir er í 7. sæti með 12 stig.

Fótbolti.net ræddi við Þórhall Dan Jóhannsson, þjálfara Ýmis, og spurði hann út í dóminn.
„Ég hugsaði mikið um þetta í gær og það voru margar hugsanir sem komu upp, sem voru um að eitthvað óheiðarlegt hafi verið með í ráðum í þessum dómi. Ég ætla svo sem ekki að saka neinn um það, ég hef alltaf þá trú að allir séu að reyna að gera sitt besta en það var svo sannarlega ekki raunin í gær. Kannski var þetta slæmur dagur hjá blessuðum manninum,“ segir Tóti og segir ákvörðunina þá verstu sem hann hefur séð á sínum fjögurra áratuga ferli.

„Ég hef verið viðriðinn fótbolta í rúm 40 ár. Þetta er versta ákvörðun dómara sem ég hef orðið vitni að. Hann dæmir víti og veit ekkert hvað gerðist. Hann er að dæma víti af því að hann heldur að markmaðurinn hafi stöðvað boltann.“

Að sögn Þórhalls hafði miðvörðurinn tekið markspyrnur liðsins allan leikinn. „Aðstoðardómarinn var alveg grunlaus um það hvað aðaldómari var að dæma á þegar ég spurði hann. Mér þótti þetta mjög sérstakt og ég hélt að hann myndi snúa þessu þegar hann var búinn að tala við aðstoðardómarann, því greinilega vissi hann ekkert um hvað málið snérist frekar en þessi blessaði aðaldómari.“

„Mér finnst að dómaranefnd KSÍ ætti að sýna Ými þann sóma að þessi dómari dæmi ekki fleiri leiki hjá Ými. En hvað svo verður, verður bara að koma í ljós,“
segir Þórhallur að lokum.
„Hann dæmir víti og hann veit ekkert hvað gerðist.“

„Hann dæmir víti og hann veit ekkert hvað gerðist.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá leik Ýmis og Aftureldingar í vor.

Frá leik Ýmis og Aftureldingar í vor.

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Tindastóll10+1222
2Víðir10+1122
3KH10+1721
4Reynir S.10+217
5KV10-415
6KF10013
7Ýmir10-312
8Höttur10-111
9Augnablik10-211
1010-710
11Sindri10-138
12Árbær10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.