Fotbolti.net
29.06.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Diomande velur PSG - Mount orðaður við Milan

Mason Mount.

Mason Mount.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Yan Diomande velur PSG framyfir Liverpool, leikmaður Manchester United er orðaður við AC Milan og Granit Xhaka vill fara til Chelsea. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.
Fílabeinsstrendingurinn Yan Diomande (19) hefur valið Paris St-Germain ef hann yfirgefur RB Leipzig í sumar. Liverpool og Real Madrid höfðu einnig áhuga á honum. (Athletic)

AC Milan hefur boðist að kaupa Mason Mount (27) frá Manchester United. Hann myndi þá spila aftur undir stjórn Rúben Amorim. (MilanPress)

Það hafa engin samskipti verið milli Milan og Manchester United hingað til vegna Mount. (Manchester Evening News)

Nottingham Forest hefur áhuga á Curtis Jones (25) miðjumanni Liverpool en hann er metinn á um 40 milljónir punda. (TalkSport)

Arsenal vill bæta fimm leikmönnum við í sumarglugganum en enski kantmaðurinn Jeremy Monga (16) hjá Leicester er meðal leikmanna sem félagið hefur áhuga á. (Star)

Franski miðjumaðurinn Maghnes Akliouche (25) hjá Mónakó hefur sagt Liverpool og Manchester United að hans forgangur sé að fara til Paris St-Germain í sumar. (Teamtalk)

Leeds United er á undan Aston Villa í kapphlaupinu um japanska markvörðinn Zion Zuzki (23) sem er hjá Parma á Ítalíu. (Calciomercato)

Hægri bakvörðurinn Malo Gusto (23) hjá Chelsea hefur samþykkt að ganga í raðir Manchester City. (Footmercato)

Granit Xhaka (33) hefur náð munnlegu samkomulagi við Chelsea og ýtir á Sunderland að selja sig. Svissneski miðjumaðurinn vill búa í London og spila aftur undir stjórn Xabi Alonso en þeir voru saman hjá Bayer Leverkusen. (Fabrizio Romano)

Argentínski markvörðurinn Emilano Martínez (33) hjá Aston Villa er á óskalista Juventus. (Tuttomercato)
Curtis Jones.

Curtis Jones.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.