Fotbolti.net
29.07.26 - 18:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kroupi frá næstu mánuðina - Mörg stórlið á eftir honum

Kroupi frá næstu mánuðina - Mörg stórlið á eftir honum
Canon

Mynd: EPA

Eli Junior Kroupi, sóknarmaður Bournemouth, verður frá í þrjá til fjóra mánuði vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu liðsins.

Þessi tvítugi leikmaður er farinn aftur til Englands úr æfingaferð liðsins í Austurríki til að gangast undir aðgerð.
Hann hefur verið gríðarlega eftirsóttur í sumar en Bournemouth er ekki á þeim buxunum að selja hann.

Félög á borð við Barcelona, Man City, PSG, Arsenal og Tottenham hafa sýnt honum áhuga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.