Axel Óskar: Við erum komnir heim en eigum eftir að klára mission-ið okkar alveg

Axel Óskar Andrésson, leikmaður Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Axel Óskar Andrésson, leikmaður Aftureldingar

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Afturelding vann Lengjudeildinna og tryggði sér með því sæti í Bestu Deildinni fyrir næsta tímabil með 2-0 sigri gegn Vestra á heimavelli í Mosfellsbæ þar sem bæjarhátíð hefur blómstrað. Axel Óskar sem kom til síns uppeldisliðs síðasta tímabil þegar þeir voru í Bestu Deildinni en féllu, hefur verið líkt og allt liðið, stór partur af því að koma liðinu aftur í deild þeirra bestu. Hvernig það fyrir honum að vera Lengjudeildar meistari?
„Fáranlega vel, öll vinnan sem að var lögð í þetta. Eftir fall á síðasta ári, maður var helvíti leiður þá og við bræðurnir, ég og Jökull grétum en þetta var góður dagur í dag. Aðeins skemmtilegra að vera með gleði tár og við erum komnir heim (Besta Deildin)."
„Að sjálfsögðu leiðinlegt að falla og allt það en þú veist, bara trúin og þessi vegferð. Maggi og Enes, þjálfarateymið, allir í kringum liðið og stjórnin. Það er svo mikil trú á þessu verkefni og við viljum spila fótbolta. Ég vissi það að þegar við féllum, það var súrt en við erum bara alltof góðir til þessa að vera í 1.deild að mínu mati og bara Ísland þarf að vera tilbúið."
Það er heldur betur stemning í Mosfellsbæ um þessar mundir, bæjarhátið í gangi og þessi stemning náðist á völlinn. Vallarmet slegið en það voru að minnsta kosti 1250 manns sem mættu á völlinn. „Þeir eru bara bestir skiluru. Það er ekki hægt að bæta stuðningsmennina okkar, þeir eru gjörsamlega sturlaðir. Algjörir stemningsmenn og konur. Líka bara Mosfellsbær í heild sinni, það er hátíð í bænum Í túninu heima. Allir saman, þetta er svo gaman. Bara hversu sturlað að gera þetta yfir þessa helgi. Takk Himmi Gunn, bæjarstjóri að láta þetta gerast.
„Ég trúi ekki neinu öðru heldur en að þetta verður einhver alvöru geðveiki hérna á Laugardalsvelli, en það er Njarðvík fyrst. Ótrúlega sætt að klára þetta með einn leik eftir. Vorum með verðuga andstæðinga í þessum efstu liðum sem voru með okkur. Fallegt að koma þessu yfir strikið eftir margar efasemdir út um allt."
Verður vel fagnað í kvöld? „Ó já, en ekki alveg fagnað út af við eigum eftir að klára mission-ið okkar alveg."
Viðtalið við Axel Óskar má sjá í heild sinni hér að ofan.
